Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,6% í nóvember frá fyrri mánuði og var 215,8 stig (fjórði ársfjórðungur 2005 = 100). Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 267,8 stig, sem er hækkun um 1,5% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju hækkaði um 0,2%. Vísitalan fyrir matvæli lækkaði hins vegar um 0,3% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,3%.

Miðað við nóvember 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,1% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 4,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 9,1% og matvælaverð hefur hækkað um 0,5%.