Trollið tekið á Vestmannaey VE. (Mynd: Kristinn Freyr Þórisson)
Trollið tekið á Vestmannaey VE. (Mynd: Kristinn Freyr Þórisson)
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2011 var 218,4 stig og hækkaði um 0,2% frá júní 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 254,1 stig, sem er hækkun um 0,2% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 265,2 stig, lækkaði um 0,5%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,5% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,8% af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,5% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,2%.

Miðað við júlí 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 17,1% en verðvísitala sjávarafurða um 15,0%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 23,6% en matvælaverð hefur hækkað um 6,9%.