Framtakssjóður Íslands hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia af Landsbankanum. Vestia á að fullu félögin Icelandic Group, Húsasmiðjuna og Plastprent og um 62% í Teymi. Teymi á félögin Vodafone, Skýrr, EJS og HugurAx.

Framtakssjóðurinn, sem er í eigu 16 lífeyrissjóða, greiðir 19,5 milljarða króna fyrir Vestia. Jafnframt mun Landsbankinn eignast 30% hlut í Framtakssjóðnum. Í tilkynningu um kaupin segir að hlutafé Framtakssjóðsins verði væntanlega tvöfaldað úr 30 milljörðum króna í 60 milljarða króna. Samkomulagið er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu að samningurinn sé góður fyrir Landsbankann og þau fyrirtæki sem eru í eigu Vestia. „Þetta er góður samningur fyrir Landsbankann, hvernig sem á það er litið og góður samningur fyrir þau fyrirtæki sem Vestia á. Þau fá nú þann trausta langtíma bakhjarl sem þau þurfa. Bankar eru ekki heppilegir fjárfestar til lengri tíma í óskyldum rekstri. Með því að bindast Framtakssjóði Íslands sterkum böndum mun Landsbankinn gegna mjög veigamiklu hlutverki í endurreisn atvinnulífsins með öðrum hætti en verið hefur fram til þessa og bankinn fagnar því tækifæri sem þessi samningur veitir honum.“

Finnbogi Jónsson, framkvæmdarstjóri Framtakssjóðs Íslands segir að með samkomulaginu eignist sjóðurinn öflug fyrirtæki. „Samstarfið við Landsbankann gerir mögulegt að efla fjárhagslega getu Framtakssjóðsins umtalsvert frá því sem nú er. Með samkomulaginu eignast sjóðurinn öflug fyrirtæki og fær til liðs við sig sterkan hluthafa til að takast á við frekari uppbyggingu. Það eru sex mánuðir frá því að sjóðurinn hóf formlega starfsemi og er hann nú þegar kominn með dreift og sterkt eignasafn. Við vonumst til þess að þegar á næstu misserum verði hægt að skrá fleiri af þessum fyrirtækjum á almennan hlutabréfamarkað og þannig gefa almenningi kost á að eignast beint hlut í þeim.“