Nokkur óvissa ríkir um framtíð Björns Þorvaldssonar, saksóknara hjá sérstökum saksóknara, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Eins og kunnugt er verður embættið lagt niður um næstu áramót þegar nýtt embætti héraðssaksóknara hefur starfsemi. Björn, sem var mjög áberandi í störfum sínum hjá Sérstökum saksóknara, sóttist bæði eftir starfi héraðssaksóknara og varahéraðssóknara en fékk hvorugt. Heimildir blaðsins herma að hann sé að íhuga stöðu sína og muni jafnvel skipta um starfsvettvang. Ekki náðist í Björn við gerð fréttarinnar.