Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni eða um 9% milli vikna. Þannig nam veltan 1.098 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins) en nam í síðustu viku 1.208 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar við þetta þriðju vikuna í röð og er nú rétt rúmur 1,1 milljarður króna, minnkar um tæpar 100 milljónir króna milla og hefur þannig dregist saman um 36% milli ára. Fyrir fjórum vikum hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 1% sem var í fyrsta frá því fyrir jól árið 2007 sem fjögurra vikna meðalvelta eykst milli ára.

Rétt er að hafa í huga að á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 74% milli ára og því má segja að fasteignamarkaðurinn, sem var orðinn rólegur í fyrra, sé enn rólegri nú.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið að stíga upp á við frá áramótum en fer þó lækkandi aftur síðustu tvær vikur.

Til að fá enn eina samanburðarmyndina hefur 12 vikna meðalvelta nú dregist saman um 31% en mest hafði hún þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l. Það að 12 vikna meðalvelta hafi dregist saman um tæp 80% í janúar sýnir enn hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur minnkað á hálfu öðru ári.

Alls var 39 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð yfir meðaltali, en 42 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning er svipuð og í síðustu viku, nemur 28,2 milljónum króna á hvern samning,  en var 28,8 milljónir í vikunni þar á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 34,2 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 15%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.