Róbert Róbertsson, fyrrum aðstoðarritstjóri Séð og heyrt og blaðamaður Mannlífs, hefur verið ráðinn ritstjóri hjá kynningarmálaútgáfu Landsbanka Íslands.

"Þetta er mjög spennandi og krefjandi verkefni hjá gríðarlega öflugu fyrirtæki sem Landsbankinn vissulega er. Bankinn er sífellt að auka umsvif sín um allan heim og er með starfsstöðvar í 14 löndum. Það eru augljóslega margir mjög spennandi hlutir að gerast hér í fyrirtækinu," segir Róbert.

Róbert hóf ferilinn sem blaðamaður á DV fyrir tæpum tveimur áratugum. Hann flutti sig um set yfir á Fróða fyrir sjö árum. Róbert skrifaði meðal annars fjölmargar Nærmyndir í Mannlíf þar sem oft var skyggnst inn í viðskiptaheiminn.