Útibú Landsbankans [ LAIS ] við Háaleitisbraut og Hamraborg hafa verið sameinuð, eins og áður hefur komið fram í Viðskiptablaðinu.  Fyrsti starfsdagur í sameinuðu útibúi, sem er til húsa í Hamraborg 8, er í dag, að því er fram kemur í frétt frá bankanum.

Starfsmenn Háaleitisútibús hafa fært sig um set og munu þjónusta viðskiptavini sína áfram á nýjum stað ásamt öðrum starfsmönnum útibúsins í Hamraborg.

Ekki kemur til neinna uppsagna í tengslum við sameininguna.

Tveir útibússtjórar stýra sameinuðu útibúi í Hamraborginni. Margrét Gísladóttir hefur yfirumsjón með einstaklingsviðskiptum og Yngvi Óðinn Guðmundsson með viðskiptum við fyrirtæki.