Prentsmiðjan Galdur á Höfn í Hornafirði hefur gengið til samstarfs við Prentun.com og munu viðskiptavinir Galdurs nú geta nýtt sér þá þjónustu og framleiðslu sem Prentun.com hefur á boðstólum.

„Við sjáum fram á að geta með samningnum við Prentun.com bæði aukið þjónustu við viðskiptavini okkar og einfaldað framleiðsluferlið hjá okkur.“ segir Heiðar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Galdurs í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Prentun.com er í eigu Kvosar hf. sem er íslenskt fjárfestingarfélag í prentiðnaði með starfsemi á Íslandi,  Bandaríkjunum og  Austur-Evrópu. Prentun.com hóf starfsemi hér á landi á síðasta ári en starfsemin á Íslandi er byggð upp að fyrirmynd breska fyrirtækisins Printing.com sem m.a. var valið fyrirtæki ársins í Bretlandi árið 2006.