Magnús Guðmundsson, þáverandi forstöðumaður einstaklingsráðgjafar Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi forstöðumaður fyrir lífeyrissjóðinn Einingu, tóku þátt í fjárfestingarleik Frjálsrar verslunar árið 1995.

Þeir fengu 200 milljónir af gervikrónum til að „fjárfesta“. Þeir áttu báðir eftir að leika stór hlutverk hjá Kaupþingi á næstu árum. Myndin birtist í Frjálsri verslun þann 1. maí 1995.