Gamli Landsbankinn (GLI) hefur samþykkt tilboð félags í eigu Remmen´s Stiftung von 1986 um kaup á Hótel D´Angleterre í Kaupmannahöfn. Nýju eigendurnir munu taka við rekstri hótelsins þann 1. febrúar næstkomandi.

Í tilkynningu frá Gamla Landsbankanum segir að kaupverð sé ásættanlegt en verði ekki gefið upp að svo stöddu.

Úr fréttatilkynningu:

„Salan er í samræmi við fyrri yfirlýsingar skilanefndar bankans um að ekki stæði til að eiga hótelið til lengri tíma litið. Kaupverðið er ásættanlegt fyrir bankann en er ekki gefið upp að svo stöddu.

GLI lagði áherslu á frá upphafi að skipuleggja alþjóðlegt söluferli og fékk meðal annars erlenda ráðgjafa með sérþekkingu á sölu- og rekstri hótela á Norðurlöndum til þess að taka þátt í því ásamt með sérfræðingum bankans og innlendum ráðgjöfum. Mikill áhugi var á söluferlinu, bæði alþjóðlegur og innan Danmerkur, en að lokum var tilboð Remmen´s metið hagstæðast.“