Vaxtafundur Seðlabanka Íslands
Vaxtafundur Seðlabanka Íslands
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Fjárfestar sýndu síðasta útboði Seðlabankans, þar sem bankinn bauðst til að kaupa evrur fyrir ríkistryggð skuldabréf í krónum, lítinn áhuga. Fékk bankinn einungis um 3,4 milljónir evra en áður hafði bankinn keypt aflandskrónur fyrir 69 milljónir evra. Gjaldeyrisforðinn minnkaði því um 65,6 milljónir evra, eða 10,7 milljarða króna miðað við opinbert gengi.

Greiningardeild Arion banka fjallar um málið í Markaðspunktum í dag og segir að velta megi fyrir sér hvort „reglulegum“ gjaldeyrisútboðum sé lokið í bíli, að minnsta kosti í því formi sem notast hefur verið við síðustu tvö skipti. Áhugi meðal fjárfesta virðist vera lítill sem enginn, segir í Markaðspunktum. Lífeyrissjóður voru stórir þátttakendur í fyrsta útboðinu. „Því verður áhugavert að sjá nánari útfærslu á næstu skrefum í afnámi hafta en væntanlega munSeðlabankinn gera áhugasömum krónufjárfestum kleift að fjárfesta í fleiri eignum en ríkistryggðum skuldabréfum.“

Þá kemur fram að ef Seðlabankinn kaupir gjaldeyri áfram á svipuðum hraða og hann hefur gert síðastliðið ár mun það taka um 10 mánuði að bæta upp fyrir þann gjaldeyri sem þeir „misstu“ í síðasta gjaldeyrisútboði.

„Seðlabankinn hefur ryksugað til sín stóran hluta þeirrar veltu sem hefur komið inn á millibankamarkað með krónur síðastliðið ár. Frá því í ágúst í fyrra hefur heildarvelta á millibankamarkaði numið um 77 milljörðum króna og hefur Seðlabankinn þar af keypt ríflega helminginn eða um 39 milljarða króna (m.v. núverandi gengi evru). Því hefur krónan e.t.v. styrkst minna en ella eða jafnvel veikst fyrir vikið.

Að frátöldum gjaldeyrisviðskiptum Seðlabankans við innlend fjármálafyrirtæki í desember sl. (sem námu í heild 25 mö.kr.) hefur Seðlabankinn safnað, í reglulegum vikulegum kaupum sínum, um 14 milljörðum króna á einu ári.“