Opinber heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráðherra til Albaníu hófst í gærmorgun með fundi hans og Sali Berisha forsætisráðherra.

Þeir ræddu tvíhliða samskipti ríkjanna, svæðisbundin mál og alþjóðamál, meðal annars leiðir til að auka viðskipti og fjárfestingar, ástand og horfur á vestanverðum Balkanskaga og afleiðingar innrásar Rússlands í Georgíu.

Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins.

„Af hálfu albanskra stjórnvalda var þakkaður stuðningur Íslands við aðild Albaníu að NATO og ítrekaður stuðningur Albaníu við framboð Íslands til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,“ segir á vefnum.

Forsætisráðherra átti einnig fund með Bamir Topi, forseta Albaníu, og Jozefinu Topalli, forseta albanska þingsins.

„Bæði lýstu þau miklum áhuga á að nýta sér reynslu Íslendinga til að efla lýðræðislega stjórnarhætti og til efnahagslegra umbóta,“ að því er fram kemur á vef forsætisráðuneytisins.

Heimsótti Actavis í Tirana

Í för með forsætisráðherra eru fulltrúar Landsvirkjunar Power og Actavis og heimsótti hann skrifstofu síðarnefnda fyrirtækisins í Tirana.

Í dag leggur forsætisráðherra blómsveig að minnisvarða um Albana sem hafa látið lífið fyrir ættjörðina og snæðir hádegisverð með Lulzim Basha, utanríkisráðherra Albaníu.

Heimsókninni lýkur síðdegis en þá heldur Geir í opinbera heimsókn til Grikklands. Þar mun hann m.a. funda með Kostas Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, og ávarpa ráðstefnu um reynslu Íslendinga af nýtingu jarðhita.