Vodafone fer niður um 13,5% í fyrstu viðskiptum í Kauphöll Íslands. Viðskiptin nema 47milljónum króna. Gengi bréfa nemur 25,30. Gera má ráð fyrir að miklar breytingar verði á gengi bréfa í dag.

Brotist var inn á vef fyrirtækisins um helgina. Vodafone viðurkenndi í kjölfarið að fyrirtækið geymdi upplýsingar mun lengur en það átti að gera.