Gengi hlutabréfa Icelandair hefur hækkað um 2,82% í 282 milljóna króna veltu frá því að markaðir opnuðu nú í morgun.

Fyrirtækið sendi frá sér tilkynningu nú í morgun þar sem fram kom að útlit væri fyrir að afkoma félagsins yrði betri á fyrsta ársfjórðungi en áætlanir höfðu ráðgert.  Það sé að mestu vegna hærri tekna og betri nýtingar.

Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 verður birtur 29. apríl næstkomandi.