Gengi hlutabréfa Marel féll um 2,25% í 104 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 0,98%, Icelandair Group um 0,6% og N1 um 0,27%

Gengi bréfa Eimskips hækkaði hins vegar um 1,53%, VÍS um 0,85% og Vodafone um 0,34%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,62% og endaði hún í 1.185 stigum. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam tæpum 740 milljónum króna.