Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í gær var m.a. fjallað um nýtt deiliskipulag á Grundartanga og viljayfirlýsingu við Greenstone um byggingu netþjónabús.

Samþykkt var viljayfirlýsing við Greenstone, um úthlutun lóðar á Grundartanga, en fyrirtækið vinnur að því að byggja netþjónabú á svæðinu. Lóð Greenstone yrði um 80.000 fermetrar og mjög áhugaverð og mikilvæg viðbóta við starfsemina á Grundartanga ef af verður.

Varðandi nýtt deiliskipulag á Grundartanga þá felur samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sf. í sér að þau drög sem nú liggja fyrir verða send sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar til umfjöllunar en deiliskipulagið hefur verið unnið í mjög góðri samvinnu við hana eins og kemur fram i frétt á heimasíðu Faxaflóahafna.

Um er að ræða deiliskipulagningu á um 153 ha. svæði með um 100 lóðum af ýmsum stærðum. Lóðirnar eru frá 3.300 fermetrar upp í 80.000 fermrar að stærð. Nokkur fyrirtæki hafa þegar fengið úthlutað lóð á Grundartanga, en með nýju deiliskipulagi er svæðið í stakk búið að taka við starfsemi fyrirtækja af ýmsum gerðum og stærðum. Reikna má með að samþykkt deiliskipulag liggi fyrir á fyrri hluta næsta árs.

Þá var samþykkt viljayfirlýsing við Greenstone, um úthlutun lóðar á Grundartanga, en fyrirtækið vinnur að því að byggja netþjónabú á svæðinu. Lóð Greenstone yrði um 80.000 fermetrar og mjög áhugaverð og mikilvæg viðbóta við starfsemina á Grundartanga ef af verður.