Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 162.900 en voru 154.100 í sama mánuði árið 2005, sem er 5,7% aukning, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 14.400 í 17.800 milli ára, 23% aukning. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 17%, úr 16.000 í 18.600. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 20.800 í 22.400, 7,5% aukning. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 4%, úr 8.800 í 9.100. Fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu nam tæplega 1% og fóru gistinæturnar úr 94.200 í 95.000 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í ágúst árið 2006 má bæði rekja til Íslendinga (23%) og útlendinga (4%), segir í tilkynningunni.

Á fyrstu átta mánuðum ársins fjölgaði gistinóttum um 10% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 754.700 í 828.100 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 22%. Á Norðurlandi nam aukningin 10%, Suðurlandi 10%, Austurlandi 8% og á höfuðborgarsvæðinu 8%. Fjölgun gistinátta á þessu tímabili má bæði rekja til Íslendinga (12%) og útlendinga (9%), segir í tilkynningunni.