Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 91.100 en voru 90.200 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um tæpt 1% milli ára.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurlandi, um 25%, og tæpt 1% á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur fóru úr 9.700 í 12.100 á Suðurlandi og úr 63.600 í 64.000 á höfuðborgarsvæðinu.

Hlutfallsleg fækkun gistinátta var mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fækkaði úr 7.000 í 5.800 eða um rúm 16%. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um tæp 15%, úr 3.100 í 2.700.

Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum einnig, úr 6.800 í 6.400, eða um tæp 6%.

Gistinóttum á hótelum fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði um tæp 5% milli ára

Gistinætur á hótelum fyrstu fjóra mánuði ársins voru 309.031 en voru 294.984 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um rúm 16%, á höfuðborgarsvæðinu um tæp 7% og á Norðurlandi um tæp 4% milli ára.

Fækkun varð á öðrum landsvæðum mest á Austurlandi eða 21% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 16%.

Fjölgun gistinátta fyrstu fjóra mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 14%, og útlendinga, 1%.