Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 153.900 en voru 132.800 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 21.100 nætur eða 16% að því er kemur fram í frétt frá Hagstofunni. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem fækkunin nam rúmum 8% þegar fjöldinn fór úr 7.400 árið 2006 í 6.800 árið 2007.

Aukningin var hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um tæp 22%, úr 83.300 í 101.600 milli ára. Á Norðurlandi nam aukningin tæpum 17%, en gistinætur þar fóru úr 12.800 í 15.000 milli ára. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um rúm 11%, úr 12.700 í 14.100. Fjöldi gistinátta á Suðurlandi stóð nánast í stað milli ára og voru um 16.500 bæði árin.

Fjölgun gistinátta á hótelum í júní má bæði rekja til útlendinga (18%) og Íslendinga (7%). Gistirými á hótelum í júnímánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 4.301 í 4.363, 10% aukning og fjöldi rúma úr 8.109 í 8.920, 10% aukning. Hótel sem opin voru í júní síðastliðnum voru 77 en 76 í sama mánuði árið 2006.

Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins samanlagða voru 564.300 en voru 484.300 fyrir sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um 23%. Aukningin nam 20% á Norðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 12% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum og 11% á Suðurlandi.

Fjölgun gistinátta fyrstu sex mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 19% og Íslendinga um 9%.