Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í maí síðastliðnum voru 725.000, en voru 692.100 í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 430.300, gistinætur í gegnum vefsíður á borð við Airbnb 120.800, og 173.900 á öðrum tegundum gististaða.

Til viðbótar voru gistinætur erlendra ferðamanna utan hefðbundinna gististaða áætlaðar 52.800 í maí, þar af 26.700 í bílum og 26.100 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 311.700, sem er 2% aukning frá sama mánuði árið áður. Um 55% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 171.400.

Um 86% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn. Erlendum gistinóttum fjölgaði um 1% frá maí í fyrra en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 12%.

Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2017 til maí 2018, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.288.000 sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Þá var herbergjanýting í maí 2018 var 58,4%, sem er lækkun um 3,8 prósentustig frá maí 2017 þegar hún var 62,2%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,4% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í maí var best á Suðurnesjum, eða 74,2%.