Gistinætur á hótelum í febrúar voru 267.900, en það er 37% aukning miðað við febrúar ári áður.

Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum. Gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 41% á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 15%.

Flestar gistinætur á hótelum í febrúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 200.400 sem er 38% aukning miðað við febrúar 2015. Um 75% allra gistinátta var á höfuðborgarsvæðinu. Suðurlandið var með næst flestar gistinætur eða 35.600.

Bretar voru lang fjölmennastir erlendra gesta en gistirnætur þeirra voru 101.600. Bandaríkjamenn voru næst fjölmennastir með 47.900 gistinætur og Þjóðverjar voru með 17.700 gistinætur.