Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 402,8 milljörðum króna í lok nóvember og lækkaði um 48,2 milljarða milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar segir að lækkunin stafi af því að skiptasamningar við seðlabanka Norðurlandanna voru ekki framlengdir.

Erlend verðbréf lækkuðu um 0,7 milljarða í nóvember og seðlar og innstæður lækkuðu um 47,5 milljarða króna.