Á fundi í morgun ákvað stjórn Glitnis að boða til hluthafafundar þann 30. apríl næstkomandi og á dagskrá er kjör stjórnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Breytingar hafa verið í hluthafa hópi og hefur stjórnarformaðurinn Einar Sveinsson selt hluti sína í bankanum. Milestone, fjárfestingafélag Karls Wernerssonar og fjölskyldu, hefur einnig losað stöðu sína í Glitni.

Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Glitnis á Kirkjusandi og hefst klukkan 15:00.