Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Glitni banka hf. heimild til greiðslustöðvunar í dag.

„Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans,“ segir í fréttatilkynningu frá skilanefnd Glitnis.

Greiðslustöðvunin mun einnig veita Glitni svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi.

Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember.

Steinunn Guðbjartsdóttir, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hún mun starfa með skilanefnd bankans, en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hennar eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.

Greiðslustöðvunin er veitt til kl. 13:30 föstudaginn 13. febrúar 2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun er skylt að boða fund með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok þess tíma. Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.

Greiðslustöðvunin nær ekki til Nýja Glitnis banka hf., en hann tók við starfsemi Glitnis á Íslandi, 15. október 2008.