Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,84% í dag og endaði í 1902,07 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,15% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskips, eða um 1,88% í viðskiptum sem hljóða upp á 305 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 244,5 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,53% í 797 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair er þá 38 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Eikar, eða um 0,75% í 336 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Eikar er 8,58 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Regins um 0,22% í viðskiptum upp á 183 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 22,8 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 3,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,9 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í dag í 3,3 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 2,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,6 milljarða króna viðskiptum.