Enginn veit hver það er sem var reiðubúinn að greiða eina milljón bandaríkjadala fyrir hádegisverð með fjárfestinum Warren Buffet en slíkt var hæsta boðið í uppboði sem Buffet hélt á Ebay. Uppboðið er hluti af góðgerðarsöfnun Buffet.

Eins og algengt er bauð sigurvegarinn ekki undir nafni en ágóðinn rennur allur í góðgerðarsjóðinn Glide sem berst gegn fátækt. Hæsta boð að þessu sinni var nokkuð lægra en hæsta boð á síðasta ári þegar einhver greiddu 3,5 milljónir bandaríkjadala fyrir hádegisverðinn.