Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar til apríl 2015 liggur nú fyrir, en það gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda.

Tekjujöfnuðurinn var jákvæður um 4,2 milljarða króna þar sem innheimtar tekjur jukust um 16,5 milljarða króna á milli ára, en á móti jukust greidd gjöld um tæpa 23 milljarða króna.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 35,7 milljarða króna samanborið við jákvætt handbært fé upp á 6,9 milljarða króna á sama tíma á síðasta ári. Skýrist það að stærstum hluta af skuldaniðurfærslu ríkisstjórnarinnar sem gjaldfærð var á árinu 2014 en kom til greiðslu í byrjun árs 2015.

Nánar má lesa um greiðsluafkomu ríkissjóðs hér .