Greining Glitnis telur horfurnar fyrir íslenskan hlutabréfamarkað neikvæðar til loka árs og sér ekki kauptækifæri í íslenskum hlutabréfum horft til skamms tíma.

Þetta kemur fram í nýrri afkomuspá Greiningar Glitnis sem birt er í Morgunkorni í morgun.

Þar kemur fram að afkomuhorfur flestra félaga hafa versnað samfara því sem aðstæður hafa versnað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

„Ársins 2008 verður minnst í sögubókum fyrir það ástand sem nú ríkir á fjármálamörkuðum. Erlend fjármögnun er lykillinn að viðsnúningi hlutabréfamarkaðarins. Okkar mat er að Úrvalsvísitalan muni lækka fram til áramóta og standa í 4.000 stigum í lok árs,“ segir í Morgunkorni.

„Við reiknum með nokkuð snörpum viðsnúningi á fyrri hluta næsta árs samhliða bættum aðstæðum á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum og spáum að vísitalan standi í 4.900 stigum um mitt næsta ár. Horft til næstu tólf mánaða teljum við kauptækifæri í bréfum Marels og Bakkavarar,“ segir Greining Glitnis.

Afkomuhorfur hafa versnað

Þá spáir greiningadeildi því að stærstu félögin muni skila lakari grunnafkomu í ár en hún hafði áður reiknað með. Á þetta við um nánast öll félög í Kauphöllinni.

„Bankarnir munu bókfæra talsverðan hagnað á öðrum fjórðungi af gjaldeyrisvörnum eigin fjár og verðtryggðum eignum en á móti vegur að arðsemi grunnrekstrar á undir högg að sækja. Ljóst er að afskriftarþörf bankanna hefur aukist hratt á undanförnum vikum. Hjá mörgum rekstrarfélaganna hafa horfur einnig versnað fyrir árið 2008, m.a. vegna hrávöruverðshækkana og verra efnahagsástands,“ segir í Morgunkorni.

Beðið erlendrar fjármögnunar

Greining Glitnis telur lykilþáttinn í viðsnúningi á innlendum hlutabréfamarkaði vera erlenda fjármögnun. Í Morgunkorni kemur fram að fréttir af fjárfestingu erlendra aðila hér á landi og erlendri lánsfjármögnun eru vísar til að hleypa lífi í markaðinn. Þá telur greiningadeildin vart hægt að búast við umtalsverðum bata á þessu ári vegna þróun lánsfjárkrísunnar á erlendum mörkuðum.

„Krísan hefur verið að grafa sig dýpra á síðustu vikum. Áhættufælni hefur aukist og skuldatryggingaálag hækkað verulega. Stórir hlutar alþjóðlegra lánsfjármarkaða eru enn því sem næst lokaðir, spár um afkomu fjármálafyrirtækja í helstu iðnríkjum hafa verið lækkaðar verulega og lánshæfiseinkunnir margra þeirra sömuleiðis. Eflaust mun það taka eitthvað fram á næsta ár að endurvinna traust lánveitenda og fjárfesta og snúa hlutabréfamarkaðnum hér heima úr því lækkunarferli sem hann hefur verið í yfir í hækkun,“ segir í Morgunkorni Glitnis.