Fjárfestingarfélagið Grettir hefur keypt í Icelandic Group fyrir 819 milljónir króna, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Fjárfestingafélagið Grettir keypti allt hlutafé í Valland S.A. í Luxemburg en meðal eigna félagsins voru 97.500.000. hlutir í Icelandic Group. Skráð kaupverð á hlutum Icelandic Group er 8,4. Gengi bréfa Icelandic Group við lok markaðar er 7,8 krónur á hlut. Ekki kemur fram hver seljandi Valland S.A. er.

Fjárfestingarfélagið Grettir er í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar, Landsbanka Íslands sem hvort um sig eiga 49,75% hlutafjár, og Stefáns I. Bjarnasonar sem á 0,5% hlutafjár.