Að sögn Guðmundur S. Johnsen, framkvæmdastjóra fasteignavefjarins habil.is, varð gríðarleg aukning umferðar á vef þeirra í haust.

Samkvæmt mælingu þá margfalldaðist umferð frá Bretlandi og Bandaríkjunum inn á vefinn. Á habil.is er tenging við flestar fasteignasölur landsins þannig að vefurinn gefur að sögn Guðmundar mjög gott yfirlit yfir hvað er í sölu hér á landi.

„Þegar mest var fóru heimsóknir erlendis frá upp í 3.000 á dag sem er gríðarleg aukning og var meira að segja á tímabili meira en innanlandsumferðin," sagði Guðmundur. Heldur hefur dregið aftur úr aðsókninni að undanförnu.

Viðbót: Rétt er að taka fram að hér um að ræða ensku útgáfu vefsins habil.is þannig að þeir sem nota þennan hluta vefsins eru enskumælandi.