Innan við viku eftir brunann í Skeifunni 11 þar sem stórverslun Griffils var til húsa, hefur fyrirtækið gert upp við alla birgja sem áttu vörur í versluninni. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tjón Griffils var gríðarlegt þar sem allt brann sem brunnið gat en yfirstjórn Pennans, eiganda Griffils, tók þá ákvörðun í beinu framhaldi af eldsvoðanum að bæta öllum birgjum sem áttu vörur í versluninni tjón sitt.

Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans segir þetta að sjálfsögðu hafa verið gríðarlegt tjón enda stóð ekkert eftir. Hins vegar var ákveðið að það fyrsta sem þeir myndu gera væri að bæta þeim birgjum sem áttu vörur hjá þeim tjón sitt og hefjast síðan handa við uppbyggingu.

Síðasta greiðsla til birgja var innt af hendi á föstudaginn, innan við viku eftir brunann.

Ingþór segir að nú sé verið að vinna í næstu skrefum og að þeir vilji að sjálfsögðu halda á lofti því einkenni Griffils að bjóða upp á góða þjónustu og gæða vöru á lægra verði. Fyrirtækið hefur verið leiðandi á því sviði til fjölda ára og þeir láta ekki eldsvoða á borð við þennan skemma það.

Unnið er að því hörðum höndum að finna nýtt húsnæði fyrir Griffil sem mun meðal annars hýsa hinn sívinsæla skiptibókamarkað fyrir námsmenn sem notið hefur mikilla vinsælda síðustu ár og tryggt nemendum hagstætt verð á notuðum skólabókum, auk þess sem hefðbundnar skólavörur verða á boðstólnum. Tilkynnt verður um nýtt húsnæði á næstunni.