Guðbjörg Tómasdóttir hefur hafið störf hjá samskiptafélaginu Aton.JL sem hönnuður og ráðgjafi. Í fréttatilkynningu þar sem greint er frá ráðningu hennar segir að hún sé með víðtæka reynslu í hönnun, hugmyndasmíð og listum.

Guðbjörg lærði grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands og Danmarks Design Skole. Hún starfaði sem hönnuður og hugmyndasmiður á Íslensku auglýsingastofunni 2011-2013 og á Jónsson & Le'macks árið 2014.

Þá var hún búsett í Bandaríkjunum árin 2016-2019 þar sem hún starfaði aðallega við eigin tónlistarverkefni undir nafninu My Bubba. Þar stóð hún meðal annars að eigin plötuútgáfu og gaf út smáskífu í samstarfi við Jack White úr hljómsveitinni White Stripes.

Síðustu misseri hefur Guðbjörg verið búsett í Skattungbyn í Svíþjóð þar sem hún stundaði árslangt nám í lífrænni ræktun og sjálfbærum lifnaðarháttum við Mora Folkhögskola. Fyrir utan tónleikahald, upptökur og nám hefur hún starfað sjálfstætt sem hugmyndasmiður og grafískur hönnuður síðustu ár. Hún kom m.a. að mörkun HönnunarMars árin 2016-2018 sem hlaut aðalverðlaun og verðlaun fyrir menningar- og viðburðamörkun hjá FÍT.

„Það er virkilega ánægjulegt að fá Guðbjörgu til liðs við okkur hjá Aton.JL. Ekki aðeins er hún sterkur hönnuður með mikla reynslu heldur mun þekking hennar á sjálfbærni koma sér vel. Viðskiptavinir okkar eru stöðugt að leita leiða til þess að auka og styrkja samtalið um sjálfbærni og fannst okkur því mikilvægt að fá inn aðila með sérþekkingu á því sviði. Við bjóðum Guðbjörgu hjartanlega velkomna til starfa," segir Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Aton.JL, í tilkynningunni.