„Það er forsætisráðherra sem mun kynna það," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, þegar hann yfirgaf fund Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, í ráðherrabústaðnum rétt í þessu.

Guðlaugur Þór sagði að allir væru sér meðvitaðir um stöðu mála og að unnið væri innan þröngs tímaramma. Aðgerðri þurfi að líta dagsins ljós fyrir opnun markaða á morgun.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, eru enn á fundi í Ráðherrabústaðnum.