Gunnar Tryggvason
Gunnar Tryggvason
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra. Tilkynnt er um ráðninguna á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.

Gunnar er með B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, Dipl.Ing gráðu í raforkuverkfræði frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi og Diplomagráðu í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.

Gunnar hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur hjá KPMG á sviði orkuiðnaðar.

Hann lætur af störfum hjá KPMG á meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns fjármálaráðherra. Gunnar hefur níu ára starfsreynslu af störfum á fjármálamarkaði, en hann starfaði áður hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Investum. Að auki hefur Gunnar sjö ára starfsreynslu sem verkfræðingur í áliðnaði.

Gunnar er kvæntur Úlfhildi Leifsdóttur tannlækni og eiga þau sex börn.