Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður RHA – Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri og mun taka við af Jóni Inga Benediktssyni, fráfarandi forstöðumanni, á næstu dögum.

Guðrún Rósa er með doktorsgráðu frá Göteborgs Universitet og hefur starfað hjá RHA frá árinu 2006. Þar hefur hún m.a. stýrt rannsóknasviði HA, unnið að rannsóknum og úttektum á sviði fjarnáms hérlendis og erlendis og verið framkvæmdastjóri á skrifstofu Rannsóknarþings norðursins. Guðrún Rósa er boðin hjartanlega velkomin í nýtt starf hjá Háskólanum á Akureyri.