Afkoma Eimskipafélagsins er verulega slæm og skýrist fyrst og fremst af miklum gjaldfærslum og háum fjármagnsgjöldum, að því er haft er eftir Gylfa Sigfússyni forstjóra félagsins í afkomutilkynningu.

Gylfi segir í tilkynningunni að helstu gjaldfærslur megi rekja til gjaldfærslu vegna ábyrgða sem tengist flugrekstri, afskriftum óarðbærra fjárfestinga í Bretlandi og Hollandi, niðurfærslu viðskiptavildar og annarra eigna, háum fjármagnskostnaði vegna mikillar skuldsetningar og óhagstæðra lánakjara.

Í tilkynningunni er enn fremur haft eftir Gylfa: „Sé litið á rekstrarafkomu flutningastarfseminnar þá dregst hún saman milli ára.  Skiptir þar mestu máli samdráttur í flutningum til Íslands á seinni hluta ársins.  Á undanförnum mánuðum hefur félagið markvisst unnið að því að hagræða í rekstri til að mæta samdrætti og sú hagræðing mun skila sér að fullu á árinu 2009.  Fjárhagsleg staða félagsins er óviðunandi en unnið er að sölu eigna í Norður Ameríku sem lækka mun skuldasetningu félagsins. Samhliða er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með lánveitendum félagsins.  Markmið miða að því að endurskipulagningu verði lokið fyrir sumarið og að traustari stoðum verði skotið undir Hf.Eimskipafélag Íslands svo það megi verða áfram mikilvægur hlekkur i atvinnulífi landsins.“