Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,16% í dag og endaði í 1767,41 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,01% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,97% í viðskiptum sem hljóða upp á 167 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 31,30 krónum á hlut. Gengi bréfa Reita hækkaði þá einnig, eða um 0,73% í 233 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 82,9 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,59% í viðskiptum sem hljóða upp á 30 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 254 krónur. Ekki urðu frekari marktækar lækkanir á gengi hlutabréfa á markaði í dag.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 642 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 1,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 0,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 1,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,5 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0 milljarða króna viðskiptum.