Sænski seðlabankinn birti í peningamálaskýrslu greiningu á mögulegum áhrifum stafrænnar tækniþróunar á verðbólgu. Í greiningu bankans kemur m.a. fram að þróunin hafi dempandi áhrif á verðbólgu en óvíst sé hversu mikil áhrifin eru. Það er mat bankans að lág verðbólga í Svíþjóð sé þó fyrst og fremst tengd öðrum þáttum. Þetta gerir Samtök verslunar og þjónustu að umfjöllunarefni sínu.

Í samantekt SVÞ á skýrslu sænska seðlabankans kemur einnig fram að samfara tækniþróuninni geti orðið breytingar í þá átt að mörg störf tapist innan ákveðinni atvinnugrein á stuttum tíma, en á sama tíma opnast nýir gluggar tækifæra annars staðar í hagkerfinu. „Því er full ástæða til að gæta varúðar og fylgja þróuninni eftir með tölfræðilegum greiningum svo hægt sé að aðlagast hratt að þeim breyttu aðstæðum og nýju tækifærum sem kunna að opnast,“ segir í greiningunni.

Einnig er tekið fram að þar sem að hin stafræna tækniþróun sé að mestu leyti markaðsdrifin þróun og því getum við ráðið miklu um framvinduna og stjórnvöld geti með stefnumótun haft mikil áhrif á hana með því að undirbúa nýjar kynslóðir fyrir breytta tíma í gegnum menntakerfið. Ásamt því að að atvinnulífið þurfi að vera vakandi og stuðla að endurmenntun vinnuaflsins.

Hvað er stafræn tækniþróun?

„Stafræna tækniþróun felur í sér viðskiptaumhverfi þar sem unnið er með rafræna framleiðslu á vörum og þjónustu auk þess sem stór hluti stjórnunarferilsins er rafrænn. Þar sem öll samskipti milli fyrirtækja og viðskiptavina fara fram í gegnum heim tölvunnar og eru viðskipti stunduð með hjálp Internets og vafraþjónustu sem eru aðgengileg öllum tölvum í heiminum,“ segir í greiningu SVÞ.