Dómari hafnaði í morgun frávísunarkröfu verjenda sex fyrrverandi stjórnenda og starfsmanna Landsbankans í máli sérstaks saksóknara gegn þeim. Málin lúta að hlutdeild þeirra í meintri markaðsmisnotkun í bankanum í aðdraganda hruns, níu milljarða króna króna lánveitingar til félaganna Ímon og Azalea Resources Ltd í tengslum við kaup þeirra á hlutabréfum í bankanum. Ímon var í eigu fjárfestisins Magnúsar Ármann en Azalea Resources skráð á bresku Bresku Jómfrúreyjum og í eigu finnska fjárfestisins Ari Salmivuori, viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar, eins af helstu hluthöfum gamla Landsbankans og sonar Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs bankans.

Sakborningarnir eru Sigurjón Þ. Árnason,  fyrrverandi bankastjóri gamla Landsbankans, Elín Sigfúsdóttir, sem var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans og fjórir aðrir allt niður í miðlara. Málin voru upphaflega eitt í Héraðsdómi Reykjavíkur en þeim var skipt í tvennt í fyrrahaust.

Sigurjón Þ. Árnason tengist báðum málunum.