Hagnaður Arctica Finance nam 76,9 milljónum á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi félagsins. Er það töluvert minna en árið áður, þegar hagnaðurinn nam 165 milljónum króna. Eigið fé í árslok 2010 nam nærri 170 milljónum og er eiginfjárhlutfallið 171,2%.

Arctica Finance er í eigu Arctica Eignarhaldsfélags, sem aftur er að stærstum hluta í eigu Bjarna Þórðar Bjarnasonar (50%) og Stefáns Þórs Bjarnasonar (38%).

Hagnaður þess félags á síðasta ári var um 700 þúsund krónur. Ekki var greiddur arður vegna rekstrar síðasta árs.