101 Hótel ehf., sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, hagnaðist um 20,9 milljónir króna í fyrra samanborið við 160,4 milljónir króna árið áður.

Í ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár, sem er ekki mjög nákvæmur, kemur fram að rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 20,4 milljónum króna. Eigið fé félagsins í árslok nam tæplega 60 milljónum króna og eiginfjárhlutfallið um 65%. Á sama tíma námu skuldir félagsins tæplega 32 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri var í árslok 37,7 milljónir króna.