Afkoma Landsbankans hf. var jákvæð um 16,9 milljarða króna eftir skatta á árinu 2011 og þar af var hagnaður af reglulegri starfsemi 10,7 milljarðar. Arðsemi eigin fjár var 8,8%. Til samanburðar nam hagnaður fyrra árs 27,2 milljörðum króna og var arðsemi eigin fjár þá 15,9%. Eiginfjárhlutfall (CAD) Landsbankans er nú 21,4% og hefur hækkað úr 19.5 % í lok árs 2010. Núverandi eiginfjárhlutfall er vel umfram það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um.

Helstu stærðir í rekstri og efnahag ársins 2011:

• Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 8,8%.

• Vaxtamunur af meðalstöðu heildareigna var 2,9%.

• Eigið fé bankans er rúmir 200 milljarðar króna.

• Eiginfjárhlutfall (CAD hlutfall) var 21,4% samanborið við 19,5% í árslok 2010.

• Heildareignir bankans námu 1.135 milljörðum króna.

• Virðisrýrnun útlánasafns er 23.6 milljarðar eftir að tekið hefur verið tilliti til gjaldfærslna vegna gengislánadóms, virðisaukningar í útlánasafninu og þess hlutar sem rennur til LBI.

• Hagnaður af hlutabréfastöðu bankans nam 18 milljörðum króna á árinu 2011.

• Rekstrarkostnaður bankans nam 21,4 milljörðum króna en þar af nam launakostnaður 12 milljörðum og önnur rekstrargjöld 8,4 milljörðum.

• Áhrif dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar síðastliðnum, á rekstrareikning bankans, eru áætluð 38 milljarðar króna.

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir í fréttatilkynningu frá bankanum: ,,Árið 2011 var á margan hátt gott ár fyrir Landsbankann og við náðum flestum markmiðum okkar. Meginverkefnið var endurskipulagning skulda viðskiptavina bankans og hefur mikið áunnist á því sviði. Þó er enn verk að vinna og staða margra er erfið. Það er keppikefli allra, hvort sem er innan bankans eða utan, að efnahagslífið vaxi og hagur heimila og fyrirtækja vænkist. Bankinn hefur jafnframt unnið að innleiðingu á nýrri stefnu sem styrkir bankann til framtíðar. Nýfallnir dómar hafa ekki verið nægjanlega skýrir og hafa því valdið óvissu um hvernig fara á með ólögmæt lán og haga endurútreikningi þeirra. Við höfum kosið að sýna ítrustu varúð í mati okkar á áhrifum dóms Hæstaréttar um vexti frá í febrúar. Ljóst er að fleiri dómar þurfa að falla áður en myndin skýrist.“