Landsvirkjun hagnaðist um 72,9 milljónir dala á síðasta ári, jafnvirði um 8,4 milljarða króna, samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 298,1 milljónum dala, jafnvirði 34,3 milljarða króna. Rekstrartekjur jukust um 10,3% milli ára og námu 43,4 milljörðum króna.

Þá jókst handbært fé frá rekstri um 16,5% og nam 26,4 milljöðrum króna. Meðal raforkuverð til stóriðju var 25,7 USD/MWst  en var 19,5 USD/MWst árið áður.  Meðal raforkuverð í heildsölu var 3,4 kr/kWst en var 3,2 kr/kWst árið áður.

Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins lækkuðu um 149,9 milljónir dollara á árinu og voru í árslok 2.674 milljónir dollara. „Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk og hafði fyrirtækið um áramót aðgang að 573,2 milljónum USD eða sem nemur 65,9 ma.kr.,“ segir í tilkynningu.

Í tilkynningu segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, að félagið sé mjög sátt við uppgjörið. „Landsvirkjun hefur verið að auka áherslu á að hámarka langtímaarðsemi orkunýtingar og ber ársreikningurinn merki þess.  Nýr samningur við Alcan á Íslandi hf. var ákveðinn áfangi á þeirri leið þar sem verðþróun raforku á Íslandi var tengd þróun raforkuverðs á alþjóðlegum mörkuðum og álverðstenging afnumin.

Landsvirkjun hefur einnig lagt áherslu á að jafna áhættu í efnahagsreikningi sínum með því að greiða niður skuldir en jafnframt tryggja aðgengi að lausafé.  Árið  2010 var annað árið í röð þar sem fyrirtækið greiðir niður skuldir sínar og í árslok var aðgengi að lausu fé upp á 65,9 milljarða króna sem hefur aldrei verið hærra.   Á árinu 2011 verður áfram lögð áhersla á að lækka skuldir félagsins.

Horfur á árinu 2011 eru góðar og helgast af hagstæðu vaxtaumhverfi og viðunandi álverði. Þá hefur fyrirtækið  mætt miklum áhuga, nýrra jafnt sem eldri, viðskiptavina á kaupum á raforku.  Samningur við Íslenska Kísilfélagið ehf. sem undirritaður var í febrúar 2011 er til marks um það.  Til að mæta  aukinni sölu þá hefur Landsvirkjun hafið framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun og standa vonir til að fjármögnun hennar ljúki innan skamms.  Einnig áformar félagið fjárfestingar fyrir 1,5 milljarða króna í verkefni á Norðausturlandi á árinu,“ segir Hörður.

Ársreikningur Landsvirkjunar.