Hagnaður Marel á fyrsta ársfjórðungi nam 28 milljónum evra, eða sem samsvarar tæplega 3,5 milljörðum íslenskra króna. Það er aukning um 33% frá sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 21 milljón evra, eða 2,6 milljörðum króna. Hagnaður á hlut var 4,11 evru sent en á fyrsta ársfjórðungi 2017 var hann 2,99 evru sent á hlut.

Pantanir á fyrsta ársfjórðungi námu 329 milljónum evra en 293 milljónum evra á sama tímabili árið 2017. Tekjur námu 288 milljónum evra, en 253 milljónum 1. ársfjórðung í fyrra, sem er aukning um 36 milljónir evra, eða 14,2%. EBIT* nam 44 milljónum evra, sem er aukning frá 38 milljónum 1. ársfjórðung síðasta árs, sem var 15,2% af tekjum. Það er aukning frá 14,9%.

Greiddu 3,6 milljarða í arð

Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 56 milljónum evra, sem er aukning frá 38 milljónum evra. Í mars var greiddur út arður til hluthafa; 4,19 evru sent á hlut, sem jafngildir um 29 milljónum evra eða 30% af hagnaði rekstrarársins 2017. Það samsvarar tæplega 3,6 milljörðum íslenskra króna. Marel keypti einnig eigin bréf á fjórðungnum að andvirði 30,3 milljónir evra.

Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x2,0 í lok mars, sem er sama hlutfall og fyrir ári, en markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3. Pantanabókin stóð í 529 milljónum evra við lok fjórðungsins en í árslok 2017 stóð hún í 472 milljónum.

Aldrei meiri pantanir

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel segir árið byrja vel. „Tekjuvöxtur var 14% milli ára með traustum rekstri þar sem EBIT* var 15% af tekjum,“ segir Árni Oddur sem segir matvælaiðnaðinn vera að breytast hratt.„Neytendur gera sífellt meiri kröfur um holl matvæli á hagstæðu verði sem framleidd eru á sjálfbæran hátt. Að auki eru matvælaöryggi og rekjanleiki lykilatriði fyrir alla aðila virðiskeðjunnar.

Sjóðsstreymi er sterkt og við höldum áfram að fjárfesta kröftuglega í nýsköpun sem og innviðum félagsins. [...] Hugbúnaður og samtenging tækja er sífellt vaxandi þáttur í heildarlausnum Marel. Pantanir dreifðust vel á milli heimssvæða og voru sterkar í öllum iðngreinum. Pantanir námu samtals 329 milljónum evra og hafa aldrei verið hærri.“

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 en félagið gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Fyrirtækið gerir jafnframt ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur. Hjá félaginu starfa 5.500 manns.