Hagnaður McDonalds nam 5,5 milljörðum dala í fyrra, eða jafnvirði 676 milljörðum króna. Hagnaðurinn jókst um 11% milli ára.

Velta skyndibitarisans jókst um 12% milli ára og nam 27 milljörðum dala og hefur aldrei verið meiri á einu ári í sögu félagsins.

Söluaukning félagsins hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum síðan 2006 og nam hún 7,1%.  Salan í Evrópu jókst um 10%.

McDonalds rekur um 33 þúsund veitingastaði um allan heim og ætlar að fjölga þeim um 1.300 á þessu ári.