Allianz, sem er stærsta tryygingarfélag í Evrópu, tilkynnti á fimmtudag að hagnaður fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi hefði aukist um 64% og hefur því fyrirtækið hækkað afkomuspá sína fyrir árið, segir í frétt Dow Jones.

Hagnaður á öðrum fjórðungi hækkaði úr 1,39 milljörðum evra í 2,28 milljarða evra, hagnaðurinn var meiri en greiningaraðilar höfðu spáð.