Hagnaður Eimskips eftir skatta nam 1,3 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var jákvæður um 3,4 milljarða króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að hagnaður á fyrri hluta árs sé umfram væntingar.

Heildareignir félagsins í lok júlí voru 46 milljarðar króna og er eiginfjárhlutfall félagsins 54%. Vaxtaberandi skuldir nema 12 milljörðum króna.

Á öðrum ársfjórðungi var rekstrahagnaður (EBITDA) jákvæður um 2,1 milljarða króna og hagnaður eftir skatta var 1,1 milljarður króna. Í tilkynningunni segir að allar rekstrareiningar félagsins séu að skila afkomu umfram væntingar.

Flutningamagn á öðrum ársfjórðungi til og frá Íslandi jókst um 11% á milli ára. Það er í fyrsta skipti síðan á fyrri hluta árs 2008 að aukning verður í flutningum. Segir í tilkynningu að flutningar hafi þó dregist verulega saman og að magnið nú sé svipað og það var árið 2000.

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir að rekstur hafi verið sniðinn að breyttum markaðsaðstæðum og árangur þeirrar vinnu sé nú að koma í ljós.

„Þrátt fyrir mjög erfið rekstrarskilyrði hefur tekist að snúa afkomu félagsins við.   Reksturinn hefur verið sniðinn að breyttum markaðsaðstæðum og er árangur þeirrar vinnu að líta dagsins ljós.  Starfsemi Eimskips krefst mikilla fastafjármuna og er mikilvægt að afkoman geti staðið undir endurnýjun þeirra.  Á síðustu árum hefur félagið ekki varið miklum fjármunum í  fjárfestingar tengdum flutningastarfsemi.  Sjóðsstaðan er góð og er félagið nú í stakk búið að endurnýja eignir.  Það er mjög mikilvægt fyrir Eimskip að viðhalda grunnstoð félagsins sem er, flutningakerfið á Norður Atlantshafi, til að tryggja viðskiptavinum áreiðanlega og góða þjónustu.“