Rekstur Íslenskra verðbréfa skilaði 166 milljóna króna hagnaði eftir skatta á nýliðnu ári. Eignir í stýringu jukust um ríflega 25 milljarða á árinu og stýrir félagið nú 95 milljörðum króna fyrir einstaklinga, félagasamtök og fagfjárfesta. Viðskiptavinum félagsins fjölgaði töluvert á árinu segir í tilkynningu.

Sævar Helgason framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa er ánægður með afkomu félagsins á árinu 2009. „Við getum ekki annað en verið sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst þegar horft er til þeirra breytinga sem orðið hafa á íslenskum fjármálamarkaði .

,,Að sögn Sævars felst styrkur félagsins í þeirri sérstöðu sem það hefur skapað sér og þeirri stefnu að vera hlutlaust og sérhæft eignastýringafyrirtæki. „Starfsemi Íslenskra verðbréfa felst eingöngu í því að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna en félagið stundar hvorki útlánastarfsemi né fjárfestir fyrir eigin reikning. Við erum eitt af fáum fjármálafyrirtækjum á Íslandi sem ekki hefur fengið ríkisaðstoð og erum með heilbrigðan rekstur og efnahag og skilum hagnaði við þessar erfiðu aðstæður," segir Sævar.

Tóku yfir sjóði Spron

Sævar bætir við að árið hafi verið mjög viðburðarríkt hjá Íslenskum verðbréfum, sem starfað hefur frá árinu 1987. „Í sumar var okkur treyst fyrir rekstri verðbréfasjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi Spron hf. Við lögðum gríðarlega vinnu í að leysa það verkefni vel þannig að viðskiptavinir Spron fyndu lítið fyrir breytingunni. Það virðist hafa tekist því langflestir þeirra hafa haldið tryggð við okkur og við sjáum m.a. aukningu í sjóðum á borð við Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa.“

Á árinu opnuðu Íslensk verðbréf skrifstofu í Reykjavík að Sigtúni 42 og þar eru nú tveir starfsmenn. „Við höfðum um nokkurt skeið íhugað að taka þetta skref og fundum fyrir miklum áhuga almennings og fagfjárfesta á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemin hefur farið vel af stað og stendur til að fjölga starfsmönnum þar ef svo fer fram sem horfir," segir Sævar í tilkynningu.