Icelandair Group skilaði 2,5 milljarða króna (19,6 milljóna dala) hagnaði á þriðja ársfjórðungi 2021 þrátt fyrir neikvæð áhrif Delta afbrigðisins á sætanýtingu og einingatekjur í september. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Lausafjárstaða félagsins hélt áfram að styrkjast og nam 57 milljörðum króna (454 milljónum dala) í lok fjórðungsins. Handbært fé frá rekstri nam 3,2 milljörðum króna (25,2 milljónum dala) samanborið við neikvætt handbært fé frá rekstri að fjárhæð 11,1 milljarðar króna (88,3 milljónir dala) á þriðja ársfjórðungi 2020,“ segir í tilkynningu flugfélagsins.

Icelandair hafi haldið áfram að auka umsvif sín í millilandaflugi í fjórðungnum með flugum til 34 áfangastaða, 11 í Norður Ameríku og 23 í Evrópu. Heildarfjöldi farþega hafi fjórfaldast miðað við þriðja ársfjórðung í fyrra og numið 700 þúsund. Þar af hafi ferðamenn til Íslands verið um 52%. Sætanýting hafi verið 68,2% og stundvísi 86%. Í innanlandsflugi hafi farþegafjöldi þegar náð því sem hann var fyrir Covid og farþegar verið um 67 þúsund á fjórðungnum.

Þá hafi mikill uppgangur verið í fraktflutningum og á þriðja ársfjórðungi hafi Icelandair Cargo skilað hærri tekjum og flutningsmagnið verið meira en fyrir Covid faraldurinn. Fraktflutningar milli Evrópu og Norður Ameríku hafi aukist töluvert á fjórðungnum og verið um 10% af heildarflutningum samanborið við 3% á árinu 2020.

„Eftir aukningu í bókunum fyrri hluta sumars, hægði á bókunum í ágúst og september vegna áhrifa Delta afbrigðisins. Aðstæður hafa batnað á ný og hefur bókunarflæði verið sterkt undanfarnar vikur. Opnun Bandaríkjanna fyrir evrópska ferðamenn er mjög jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins þar sem allir markaðir þess verða opnir í kjölfarið. Flugframboð félagsins á þriðja ársfjórðungi var um 50% af framboði félagsins á sama tíma 2019. Í fjórða ársfjórðungi mun félagið auka framboð sitt í um 65% af framboðinu 2019 og fljúga til 11 áfangastaða í Norður Ameríku og 15 í Evrópu. Áhrifa heimsfaraldursins og tilheyrandi ferðatakmarkana mun þó halda áfram að gæta og hátt eldsneytisverð mun hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins í fjórða ársfjórðungi,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Eftir árangursríka uppbyggingu skilar félagið hagnaði í fyrsta sinn í tvö ár sem er mjög ánægjulegt. Við sexfölduðum flugframboð í millilandaflugi á milli ára og nam framboðið um 50% af framboði sama tímabils 2019 sem er mjög góður árangur í ljósi krefjandi aðstæðna. Sætanýting var góð í júlí og ágúst og við fluttum fleiri farþega í júlímánuði en fyrstu sex mánuði ársins samanlagt. Þá tók flug yfir Atlantshafið verulega við sér þegar Evrópa opnaði á ferðalög fyrir bandaríska ferðamenn. Við erum stolt af því að hafa náð 86% stundvísi í fjórðungnum þrátt fyrir flóknar ferðatakmarkanir og mikla  aukningu í flugi á stuttum tíma. Ástæða þessa árangurs er fyrst og fremst sá sveigjanleiki sem félagið býr yfir - bæði leiðakerfisins og ekki síður starfsfólks okkar sem ég vil þakka fyrir frábæra frammistöðu, úthald og útsjónarsemi við að bregðast hratt við breytingum á mörkuðum okkar og koma auga á öll möguleg tækifæri.

Þrátt fyrir að við séum á réttri leið, hélt heimsfaraldurinn áfram að hafa áhrif á á starfsemi félagsins. Útbreiðsla Delta afbrigðisins hægði á bókunum í lok fjórðungsins en þær hafa nú aftur tekið við sér. Eftirspurn eftir frakflutningum var  áfram sterk. Icelandair Cargo sérhæfir sig meðal annars í flutningi á ferskum íslenskum fiski og styður þannig við þá mikilvægu útflutningsgrein okkar Íslendinga. Við nýtum öflugt leiðakerfi okkar til þess að koma ferskum fiskafurðum á fjölbreytta markaði beggja vegna Atlantshafsins og á disk neytandans á innan við 48 tímum en þessar vörur eru jafnframt með lágt kolefnisfótspor samanborið við aðra próteingjafa.

Bókunarstaða félagsins er góð næstu mánuði og opnun landamæra í Bandaríkjunum þýðir að við getum farið að nýta leiðakerfi félagsins til fulls í fyrsta skipti síðan í mars 2020. Það er mikilvægt fyrir endurreisn ferðaþjónustunnar á Íslandi að við tryggjum samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands. Lykilþáttur í því er að íslensk stjórnvöld tryggi að þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á landamærum hér á landi séu einfaldar, ferlið sé skilvirkt og í samræmi við þær reglur sem gilda í löndunum í kringum okkur. Við hjá Icelandair erum vel í stakk búin til að grípa þau tækifæri sem munu gefast á næstu mánuðum með öfluga innviði, sterka lausafjárstöðu, reynslumikið starfsfólk og með því að nýta þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir."