Hampiðjan hefur keypt eigin bréf fyrir fjórar milljónir, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 500.000 hluti, keypta á genginu 8 krónur á hlut.

Eftir viðskiptin á Hampiðjan 708.323 hluti í sjálfu sér.

Samkvæmt hluthafaskrá eru tíu stærstu hluthafar Hampiðjunnar:

Vogun 28,49%
Atorka Group 21,85%
Fiskveiðahlutafélagið Venus 11,85%
SJ1 9,11%
Bragi Hannesson 4,00%
Árni Vilhjálmsson 3,45%
Sigurgeir B Guðmannsson 2,55%
Súsanna Sigurðardóttir 1,57%
VBS Fjárfestingabanki 1,53%
Soffía Guðmundsdóttir 1,16%